Flýtilyklar
Velkomin(n)
Nökkvi félag siglingamanna á Akureyri var stofnað 8. okt . 1963 en hét áður Sjóferðafélag Akureyrar.
Nýjustu fréttir
-
Gallar og búnaður, hóppöntun frá Gill fyrir 15. maí.
Almennt - mánudagur 13.maí.13 12:33 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 74 - Athugasemdir (0)Siglingakrakkar Nökkva ath, hóppöntun á göllum og öðrum búnaði frá Gill verður send af stað eftir tvo daga eða 15 maí, endilega kíkkið á http://www.gillmarine.com/df, skráið númer vöru og sendið á sil@isisport.is sem fyrst.
-
Fyrstir á sjóinn þetta árið.
Almennt - mánudagur 13.maí.13 08:55 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 101 - Athugasemdir (0)Þeir vinirnir Stefán Ármann og Jón Óafur voru fyrstir þetta árið að koma bátunum sínum á sjóinn. Það verður gaman að sjá hvernig nýjir Lasersiglar spreyta sig þetta sumarið en nokkrir nýjir eru að fara hefja sitt fyrsta sumar á þessum frábæru og hraðskreiðu einstaklings kænum. Fastar æfingar hefjast á miðvikudaginn nk kl 17 og vonandi verður Vörðurinn kominn í lag. Framundan er vonandi frábært sumar, æfingabúðir hefjjast laugardaginn 6 júlí og standa alla vikuna þar á eftir. Yfirþjálfari Laserhópsins verður Alberte Lindberg sem er okkur Nökkvamönnum góð kunn en hún þjálfaði hér um tíma 2007 og hefur um langa hríð verðið ein af bestu siglingakonum Danmerkur á Laser. Hjalti sendi okkur myndir af fyrstu æfingu strákanna á sunnudaginn.

Glæsilegri siglingamenn Jonni og Stefán, það er ekki hægt að sjá að nýuppgerði Laserinn hans Stefáns sé frá árunum 1980-85. Flott strákar, þetta er leiðin að verða enn betri siglingamenn. Fleiri myndir hér undir.
-
Margar skóflustungurr teknar á föstudag 10 maí.
Almennt - sunnudagur 12.maí.13 22:30 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 154 - Athugasemdir (1)Það var hátíðarstemming á föstudaginn 10 maí sl þegar fyrstu skóflustungur af nýju athafnasvæði voru teknar innan við Höpfnersbryggju. Það sem þetta hefur haft ótrúlega langan aðdraganda, allt að 30 ár var haft eftir einum fyrrverandi formanni Nökkva, var ákveðið að margir ættu það skilið að taka fyrstu skóflustunguna. Fyrstir á skóflurnar voru Heiðursfélagarnir Hermann Sigtryggsson, fv íþróttafulltrúi, Gunnar B Árnason, fyrsti formaður Nökkva 1963 og svo félagi þeirra og einn af stofnendum Nökkva Dúi Eðvaldsson. Næstu menn voru Gunnar Hallson fv. fornmaður Nökkva til fjölda ára, Rúnar Þór núverandi formaður Nökkva og Tryggvi Gunnarsson formaður Íþróttaráðs Akureyrar. Að lokum voru það feðginin Ísabella Sól og Tryggvi Heimisson, fv formaður Nökkva, sem tóku í skóflurnar. Til gaman voru svo stjórnmálamönnum flokka á staðnum boðið að grípa í skóflu með áskorun að standa að baki frekari uppbyggingu hjá klúbbnum, Halla Björg, Logi Már og Ólafur Jónsson tóku áskoruninni við gott lófaklapp viðstaddra. Tryggvi Gunnarson flutti nokkur orð og einnig fornmaður SÍL , Úlfur Hróbjartsson sem gladdi Nökkvamenn með nærveru sinni. Að athöfn lokinni var gestum boðið upp á veitingar í húsnæði klúbbsins.
Formaður SÍL, Úlfur Hróbjarts flytur ræðu við athöfnina. Fleiri myndir frá Hjalta Jóhannessyni hér undir.
-
Framkvæmdir hófust í dag 7 maí.
Almennt - þriðjudagur 7.maí.13 16:18 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 101 - Athugasemdir (1)Það er með mikilli gleði sem ég get sett þessa frétt inn á heimasíðuna okkar en fyrsti hluti framkvæmda við nýtt afhafnasvæði fyrir Nökkva hófst í dag. Á háfjöru í dag fór fyrsta grafan inn á grynningarnar á Leirunni og hóf að moka upp sandi í nýja uppfyllingu. Við munum lofa Nökkvamönnum vítt og breytt að fylgjast náið með framkvæmdum hér á heimasíðunni og sendum öllum kærar kveðjur í tilefni dagsins. Næstu daga munum við halda upp á þetta tilefni og bjóða félögum okkar að koma og þyggja veitingar og sjá teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum. Með bestu kveðju frá stjórn Nökkva, Rúnar Þór formaður Nökkva.

Teiknistofan Teikn sem hannaði svæðið og fyrirtækið Skútaberg sem framkvæmir.
-
Norðursigling bætir glæsilegri skonnortu í flotann.
Almennt - föstudagur 19.apr.13 12:26 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 160 - Athugasemdir (0)Vinir okkar Norðursigling á Húsavík bætir enn einni seglskútunni í flota sinn í dag. Hér er smá hluti úr fréttatilkynningu fyrirtækisins.
Opal er leiðangurs- og hvalaskoðunarskip, 32 metra löng, tvímastra skonnorta með 380 fm seglaflöt og níu segl. Opal hefur káetur fyrir 12 farþega, í sex klefum, auk áhafnar. Um borð er 280 hestafla Scania vél og skipið er vel búið tækni- og öryggisbúnaði. Skonnortan er byggð sem togari í Damgarten árið 1952 en hún er úr eik.
Nökkvamenn senda eigendum Noðrursiglingar hamingjuóskir og von um að fá að sjá þá sem oftast hér við fjörðinn.

Opal er glæsileg 32m skonnorta.
-
Framkvæmdir að hefjast við nýja aðstöðu Nökkva.
Almennt - föstudagur 12.apr.13 11:43 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 227 - Athugasemdir (0)Það er mikil gleði hjá Nökkvamönnum þessa dagana, framkvæmdaleyfi fyrir fyrsta hluta nýframkvæmda á Nökkvasvæðinu var veitt á fundi skipulagsnefndar Akureyrar sl miðvikudag 10 apríl. Framkvæmdir munu hefjast mjög fljótlega og verður þeim gerð góð skil hér á heimasíðunni allan tímann. Stefnt er að fyrstu skóflustungu um aðra helgi ef allt gengur vel. Hér eru teiknigar af fyrsta hluta framkvæmda ásamt nýlegri loftmynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði.
Fleiri myndir hér undir.
-
Góður félagi og siglingamaður kvaddur.
Almennt - fimmtudagur 11.apr.13 15:34 - Jón Magnússon - Lestrar 198 - Athugasemdir (0)Góður félagi okkar og siglari, Bjarni Hannesson, eigandi seglskútunnar Sunnu hér á Akureyri verður jarðaður í dag frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Við Nökkvamenn minnumst Bjarna með miklum söknuði og góðum hug og og setjum mynd af honum hér á heimasíðuna. Eiginkonu hans Þorbjörgu Þóroddsdóttur og siglingafélaga Bjarna ásamt ættingjum og vinum sendum við innilegustu samúðarkveðjur á þessari ótímabæru sorgarstund.
Bjarni Hannesson á siglingu á Pollinum eitt bjart sumarkvöld og í essinu sínu.
-
Nökkvamenn meðal styrkþega Samherja 2013.
Almennt - miðvikudagur 27.mar.13 21:37 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 280 - Athugasemdir (0)Það er með mikilli gleði sem við getum tilkynnt siglingafólki Nökkva að við vorum meðal fjölda annara styrkþega við úthlutun Samherjastyrksins 2013. Það er ótrúlegt að vera með í svona athöfn þar sem 90 miljónum króna er veitt til samfélagsins hér við fjörðinn og við óskum Íþróttasambandi Fatlaðra til hamingu með sérstakan styrktarsamning vegna Special Olympics 2016. Nökkvamenn senda eigendum Samherja og starfsfólki kærar þakkir fyrir stuðninginn. Siglingastúlkan okkar og siglingakona SÍL ársins 2012, Lilja Gísladóttir tók við styrknum fyrir hönd Nökkva. Sjá nánari frétt á vef Vikudags.

Myndin er fengin af vef Vikudags á Akureyri, Lilja við hlið Helgu Steinunnar fremst fyrir miðju.
-
Stofnendur Nökkva koma saman.
Almennt - mánudagur 25.feb.13 15:36 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 431 - Athugasemdir (0)
Gunnar Árnason sýnir félögum sínum, Hermanni Sigtryggssyni og Dúa Eðvaldssyni myndir af frönsku skútunni sem hvílir undir Nökkvasvæðinu.
Núna 50 árum eftir að Nökkvi, félag siglingamanna var stofnað var nokkrum af frumkvöðlunum boðið í heimsókn. Boðið var upp á vöflur og annað góðgæti og gamlar sögur rifjaðar upp um tilurð siglingaklúbbsins. Markmiðið er að afla sem gleggstra upplýsinga um upphafið af stofnun klúbbsins en hugmyndin er að reyna gefa út blað eða annað lesefni um klúbbinn og starfsemina þessi 50 ár. Hvetjum við eldri félaga og aðra sem luma á myndefni að hafa samband við formann Nökkva, Rúnar Þór eða senda okkur tölvupóst á
siglingaklubburinn@gmail.com
-
Aðalfundur Nökkva 7. mars nk.
Almennt - miðvikudagur 20.feb.13 13:24 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 348 - Athugasemdir (0)Aðalfundurinn verður haldin í nýja húnsæði Nökkva kl 20 á fimmtudagskvöldið 7 mars nk. Allir félagar hvattir til að mæta og tjá sig um klúbbstarfið en annars eru þessi venjulegu aðalfundarmálefni, reikningar og fleira.
-
Formaður SÍL setur vetrarstarfið í gang.
Almennt - laugardagur 19.jan.13 21:33 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 603 - Athugasemdir (7)
Fv Úlfur, Breki, Stefán, Þorlákur, Sigurður Orri, Þór, Siggi Sean, Lilja,Friðrik, Jonni og Óli Víðir.
Það var góð mæting í dag þegar siglingamenn Nökkva komu saman með landsliðsþjálfaranum Óla Víði og Úlfi Hróbjarts formanni SÍL í Nökkva. Eftir góðan fund við sjóinn í morgun var farið í æfingarsalinn á Bjargi. Það voru siglingamenn látnir þreyta þolpróf og kennt nýjar og fjölbreyttar æfingar til styrktar líkamanns fyrir komandi siglingasumar. Þetta frábær byrjun og hugmyndin er að Óli Víðir komi aftur um miðjan mars og taki þá stöðuna á siglingafólkinu á nýjan leik. Nökkvamenn senda Öbbu á Bjargi bestu þakki fyrir afnot af salnum og hugmyndin er að styrktaræfingar fari fram þar í vetur.
Fleiri myndir hér.
-
Fyrsta afmælisgjöfin, Norðurorka styrkir Nökkva.
Almennt - laugardagur 5.jan.13 15:08 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 575 - Athugasemdir (1)
Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku, Rúnar Þór Björnsson formaður Nökkva, Björn Heiðar Rúnarsson siglingamaður og Baldur Dýrfjörð starfsmaður og formaður úthlutunarnefndar Norðurorku.
Það var með stórri gleði sem formaður Nökkva tók við gjafabréfi úr hendi Helga Jóhannessonar forstjóra Norðurorku á Akureyri sl föstudag 4. jan. Í athöfn sem haldin var í húsnæði fyrirtækisins á Rangárvöllum var saman komið mikið af fólki frá mörgum félagasamtökum og einstaklingar sem hlutu styrki að þessu sinni. Akureyrarmeistari Nökkvamanna í siglingum, Björn Heiðar hlaut einnig afreksstyrk fyrir undirbúning að heimsmeistaramótinu í Santander a Spáni 2014. Við þökkum Norðurorku fyrir veittan styrk og vonum að önnur fyrirtæki sjái sér fært að gera það einnig.
Þessi gjöf markar upphaf á afmælisátaki Nökkvamanna sem standa mun allt þetta ár. Send verða bréf í fyrirtæki á Akureyri og annarstaðar þar sem óskað verður eftir styrk til endurnýjunar á öryggisbúnaði klúbbsins og til kaupa á nýjum bátum. Barna og unglingastarf Nökkva hefur vaxið talsvert sl. ár og nauðsynlegt að eiga góðan og nútímalegan búnað. Þetta hefur verið eina leið okkar Nökkvamanna að endurnýja búnaðinn og bátana en rekstrarstyrkur bæjarins hefur lítið hækkað í krónutölu til fjölda ára. Eins og fram hefur komið þá er beðið frétta af fjármagni til framkvæmda sem eiga að hefjast á þessu ári og vonum við Nökkvamenn að það verði bæði fljótlega og myndarlega.
Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 1680636

