Nökkvi - Félag siglingarmanna á Akureyri

Nökkvi - Félag siglingamanna á Akureyri

Flýtilyklar

Fréttir

Baráttuár framundan 2012

Almennt - mánudagur 2.jan.12 13:57 - Rúnar Ţór Björnsson - Lestrar 911 - Athugasemdir (5)
Ágætu siglingamenn Nökkva, ungir sem aldnir.  Bestu hátíðarkveðjur með von um gott ár 2012.  Það var verulega mikið um að vera á sl. ári, endurbættum Optimistabúnaðinn talsvert og fengum 3 nýja báta.  Bættum öryggismálin talsvert með nýjum björgunarbáti, vestum og nýjum VHF talstöðvum.  Ekki má gleyma nýjum seglbát, sérhönnuðum fyrir fatlaða sem við tókum upp og kynntum í des sl.   Fyrirtæki, félagasamtök og margir aðrir veittu okkur styrki ásamt rekstrarstyrk Íþróttaráðs og Samfélags og mannréttindaráðs.  Árið 2012 verður áherslan lögð á Laser búnaðinn og svo aðstöðumálin sem eru komin í algert óefni.  Nökkvamenn, ef einhvertímann er þörf á dugnaði þá er það núna, við verðum að koma framkvæmdum á áætlun, bæta aðstöðu til bráðabirgða og finna okkur nýtt geymsluhúsnæði fyrir búnaðinn okkar.  Æfingahópurinn þarf líka gera sig klára,  byrja á sameiginlegum æfingum nokkru sinnum í mánuði og svo um leið og tíðin verður góð í vor verðum við klár með bátana.  Gerum þetta af einu af stóru árunum í klúbbnum okkar og sýnum að við skiptum máli í ásýnd og íþróttalífi bæjarins.  Kveðjur Rúnar Þór formaður.

Til baka


Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf